Ég legg til að við endurvekjum þessa dásamlegu bloggsíðu sem hefur verið heldur betur afskipt þetta árið. Við erum allar búnar að vera svo uppteknar að tími er aldeilis kominn að við setjum á blað hvað hefur á daga okkar drifið.
Svo að ég segi aðeins frá mér þá var ég á síðustu önn heldur betur upptekin í skólanum og kláraði með fínar einkunnir og þar hæst 10 í eðlis- og efnafræði... alger töffari. Svo ég er alltaf að kyrja og bæta lífið mitt að innan sem utan og það gengur bara alveg ótrúlega vel :-D. Í sumar tók ég einn áfanga í sumarskóla, ætlaði að taka tvo en komst bara yfir einn :-/ , svona er þetta stundum þegar börnin eru í simarfríi að maður kemst bara alls ekki yfir það sem maður ætlaði sér. En sumarið var rosalega gott, við vorum rosalega mikið úti í sólinni á meðan hún entist og svo fórum við í frábært ferðalag yfir verslunarmannahelgina.
Í síðustu viku byrjaði svo skólinn og allt er að renna í rétta rútínu, það er aldeilis gott því þetta er síðasta önnin mín í fyrir stúdentspróf.