mánudagur, október 31, 2005
Það er svo undarlegt....
Ég hef ekkert að segja nema hlakka til að fara til Danmerkur. Reyndar skrítið Ingi fór til Danmerkur á Hróaskeldu, mamma fór í september, Þóra systir var að koma þaðan og ég er að fara eftir 10 daga.... hmm fyndið, skrítin tilviljun. En allaveg Lára er byrjuð í leikskóla og ég er ekkert smá spennt að fá almennilegan tíma til að fara á Paradís í ALGERA yfirhalningu.
Svo rakst ég á þetta mjög sérstakt....
Þessi gaur sem reiknaði ekki alveg með árstíðaskiptum.
Ahahahahahahaha
|Hjördís|Skonsurnar|10:38 e.h.||
Þetta er nú blessaða meistaraverkið
Stelpur aðeins 65 dagar í ítalíuferðina mína. Ég er næstum að vera búin að selja aleiguna mína. Albert verður nú erfiðast að selja enda besti vinur minn.
Skódatíkinn þykir mér nú líka soldið vænt um líka enda fór með mig án þessa að bila í svakalega
hringferð í sumar. og hvað haldiði ég ætla að fara út tölvulaus, ÉG.... ég trúi því ekki einu sinni sjálf. Kannski á ég eftir að koma heim, horfa ekki á sjónvarpið, vera í andlegu jafnvægi og góðu líkamlegu formi. Hugsa sér hahahah
Allaveganna ég kem eflaust aftur heim í júlí og mun þá vinna til lok ágústs. Þá mun ég fara aftur út og þá er það bara stóra spurninginn er það aftur Ítalía, Kanada eða Köben, Who knows. Nei fór bara að spekúlera eftir að Hjödda var að spá fyrir mér og að skipuleggja ferðina rosalega vel. Þannig að ég lendi nú ekki í vanda hvort sem það er pengingalegaséð eða standi upp með ekkert, peningalaus, enga tölvu á ítalíu og ekkert plan um hvað ég ætli að gera í framtíðinni. WORD
Ciao mio amici
|audibet|Skonsurnar|1:33 f.h.||
fimmtudagur, október 27, 2005
Jæja þá er saumaklúbbur á eftir hjá mér. Hlakka til að sjá ykkur.
Hér er brandari í boði kvöldsins.
Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar.
Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist.
Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður.
Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha,ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.
|Hjördís|Skonsurnar|7:49 e.h.||
Myndir á nýja blogginu
Af svo vill til að þið viljið aðra mynd af ykkur á nýjabloggið þá verði að senda mér annaðhvort linkinn, myndina í tölvupósti audibet@simnet.is og það sem fyrst. Eða láta mig fá myndina og ég get skannað hana inn.
en þetta verður að gerast fljótlega annars verður hin myndin inni OK
|audibet|Skonsurnar|7:29 e.h.||
Ný skonsusíða ef hún verður samþykkt
Ég tók nokkrar myndir sem ég átti af okkur, og útbjó þetta einfalda blogg, hvernig líst ykkur á að hafa þetta sem endanlegu skonsursíðuna.
http://testprufatest.blogspot.com/
|audibet|Skonsurnar|4:06 e.h.||
þriðjudagur, október 25, 2005
What kind of bees make milk? ......
....Boobees!
|Hjördís|Skonsurnar|2:40 e.h.||
miðvikudagur, október 19, 2005
Vá aldrei hafði mér dottið í hug að ég væri Donna u know why......
... ekki bara það heldur var hún leiðinlegust
Hey Auður myndin af mér í prófílnum er dottin út!! Can u fix it?
|Hjördís|Skonsurnar|3:40 e.h.||
þriðjudagur, október 18, 2005
Það er snilldar leikur á
leikjanet.is sem heitir
Bubbles við erum að tala um að ég er húkt á honum ;)
|Hjördís|Skonsurnar|5:58 e.h.||
mánudagur, október 17, 2005
Jæja þá er komið að því saumaklúbbur hjá Hjöddu ... fimmtudaginn 27. október á slaginu 8. Fædd og ófædd börn velkomin.
;)
|Hjördís|Skonsurnar|10:07 e.h.||
sunnudagur, október 16, 2005
Hérna kemur ein góð picup lína.
Ertu upptekin í kvöld ... svona um þrjú leitið?
ahahahaha
(Reyndar ekki alveg viss um að hún virki....)
|Hjördís|Skonsurnar|1:01 f.h.||
Hér kemur brandari í boði Hjördísar
Eitt sinn var miðaldra maður á gangi á strönd einni í Norður Bandaríkjunum.
Hann hafði ávalt trúað á Guð, alltaf mætt í kirkju á sunnudögum og alltaf beðist fyrir!
Þá sér hann ljós nálgast frá skýjunum og stansar svo rétt hjá honum!
Þá heyrist skýið segja: "Ég er Guð almáttugur! Þar sem þú hefur alltaf trúað og beðist fyrir, hef ég ákveðið að veita þér eina ósk!
Maðurinn hugsar sig vel um og segir svo loks: "Mig langar í brú til Hawaii sem ég get alltaf notað þegar mig sýnist!"
Guð hugsar sig um og segir: "Ja, þetta er góð hugmynd, en þetta myndi þurfa mikið efni og yrði því ekki gott fyrir náttúruna.
Er eitthvað annað sem þér myndi langa í?"
Maðurinn segir eftir smástund: "Mig langar að skilja konur! Af hverju þær gráta, af hverju þær eru svo oft leiðar og oft svo reiðar."
Guð segir fljótur: "Viltu tvær eða fjórar akgreinar á brúnna?"
Hérna er annar
Einu sinni voru tvær pylsur á grilli, þá sagði önnur: "Vá, hvað þú ert grilluð!"
Þá sagði hin: "Hey, talandi pylsa"
ahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha
|Hjördís|Skonsurnar|12:35 f.h.||
föstudagur, október 14, 2005
Er öllum vel við þig!!
Þetta var á síðunni hennar
Ingu Hlínar um daginn svaka snilld. Sem sagt
hérna er síða sem segir til um hvort eitthver er búin að blokka mann eða deleta af msninu sínu... hehe enjoy
|Hjördís|Skonsurnar|5:46 e.h.||
fimmtudagur, október 13, 2005
Það er spurning hvort ðððð og þþþ koma rétt út
Allt komið í orden nema það að núna virkar ekki öööö ðððð þþþþþþþ og fleira. Hvur djöfulinn er eiginlega að þessu shitti.
|audibet|Skonsurnar|4:17 f.h.||