mánudagur, janúar 30, 2006
Ég var ekki búin að setja inn neinar myndir frá Danmerkurferðinni vúps vá ég lifi í öðrum heimi...
|Hjördís|Skonsurnar|8:15 e.h.||
sunnudagur, janúar 29, 2006
Þórmundur snillingur
Þið verðið að tékka á þessu. Þorri bróðir er að skrifa glæpasögu, komnir þrír kaflar, alger snilld.
frasinn.blogspot.com
|Hjördís|Skonsurnar|12:16 f.h.||
föstudagur, janúar 27, 2006
Úlala
You are Wonder WomanWonder Woman |
| 92% | Superman |
| 80% | Supergirl |
| 72% | The Flash |
| 70% | Robin |
| 60% | Spider-Man |
| 55% | Batman |
| 30% | Iron Man |
| 25% | Hulk |
| 20% | Green Lantern |
| 20% | Catwoman |
| 15% |
| You are a beautiful princess with great strength of character.
|
Ýttu hérna til að taka ofurmanneskjuprófið
|Hjördís|Skonsurnar|9:27 e.h.||
miðvikudagur, janúar 25, 2006
Stundur er gott að vita hvað maður er að fara að segja....
Einn prestur hér í bæ, sem hægt væri að segja að væri gersneyddur af kímnigáfu, fór á námskeið þar sem boðið var upp á þjálfun fyrir presta svo þeir gætu bætt ræðutækni sína. Á meðal kennara voru margir einstaklega góðir og snjallir ræðumenn.
Einn slíkur kom upp í ræðustól og fangaði athygli áhorfendaskarans og sagði: "Bestu árum ævi minnar hef ég varið í fangi kvenmanns sem er ekki eiginkona mín!" Óneitanlega vakti þessi fullyrðing mikla athygli í salnum og margir vissu ekki hvað þeir áttu að segja. En þá botnaði ræðumaðurinn setninguna: "...og þessi kvenmaður var móðir mín!" Áhorfendur voru fljótir að springa úr hlátri og í kjölfarið hafði ræðumaðurinn óskoraða athygli í salnum.
Vikuna eftir ákvað þessi fyrrnefndi prestur að nota þennan brandara í hugvekjunni sinni. Þegar hann nálgaðist prédikunarstólinn fór hann yfir brandarann í huga sér, en þar sem hann var óvanur að segja brandara fór stressið eitthvað að rugla um fyrir honum hvernig brandarinn væri.
Þegar hann kom í stólinn sagði hann hátt og snjallt: "Bestu árum ævi minnar hef ég varið í fangi konu sem er ekki eiginkona mín!" Söfnuðurinn greip andann á lofti þegar hann heyrði þetta og eftir að presturinn hafði staðið orðlaus í um 10 sekúndur, leitandi logandi ljósi í huga sínum eftir því hvernig brandarinn endaði, þá sagði hann: "Og ég man ekki hver hún var!"
|Hjördís|Skonsurnar|2:16 e.h.||
laugardagur, janúar 21, 2006
Hvað segiði um saumó á mánudagskvöld.
|Hjördís|Skonsurnar|11:54 f.h.||
mánudagur, janúar 16, 2006
Kveðja frá Ítalíu
Sælar elskur, langaði bara að kasta á ykkur kveðju, ég ætla að senda ykkur bréf bráðlega, en annars verðið duglegar að lesa bloggið mitt og skoða myndirnar. Sakna ykkar, kveðja Jesúbarnið Auður Elísabet
|audibet|Skonsurnar|6:31 e.h.||
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Niður með viðbjóð
|Hjördís|Skonsurnar|11:52 e.h.||
Svona líta fyrirsætan út, á forsíðunni og svo í raunveruleikanm, það er SMÁ munur...
Tékkið á þessu
Hérna er skoðað hvernig forsíðumyndum er breytt og hvernig fyrirsætan lítur út fyrir og eftir...
Eins og hún hafi verið eitthvað ljót fyrir glætan
|Hjördís|Skonsurnar|5:52 e.h.||
Ég er þá kannski bara ekki til c", ...
|Hjördís|Skonsurnar|5:39 e.h.||
mánudagur, janúar 09, 2006
Dadaraaaaa...
Nú er ég orðin skólastelpa.
(enn og aftur og eina ferðina)
p.s. ég mæli ekki með því að skipta oft um skóla, maður tapar bara á því útaf sum staðar er tveggja eininga áfangar og annars staðar eru þriggja..... BULL
bæ
|Hjördís|Skonsurnar|9:21 e.h.||
mánudagur, janúar 02, 2006
Höfðingi
Við vorum að fá okkur kisa, hann heitir sem sagt Höfðingi rosa sætur.
|Hjördís|Skonsurnar|7:49 e.h.||
Hreyfist þetta eða ekki???
|Hjördís|Skonsurnar|7:42 e.h.||
sunnudagur, janúar 01, 2006
Maður veit sko ekki hvað maður hefur fyrr en maður hefur misst það...
Ok, það er ekki hægt að skilja þetta líf. Þegar maður heldur að maður sé komin með smá hint þá gerist eitthvað og vá allt í vitleysu.
Jæja best að byrja á byrjun. Það var sem sagt áramótapartý hjá mér í gærnótt. Fín mæting og góð stemmning. Við höltruðum niður í bæ um fimmleitið og fórum á Pravda. Ég, Birgitta, Sara og Eiki vorum á dansgólfinu uppi í góðum gír, soldið heitt svo að við settum stöffið hjá súlu sem við dönsuðum hjá. Birgitta er á barnum með eitthverjum gaur og ég hitti eina sem ég þekki og fer að tala við hana og sný baki í Söru og Eika. Ok þegar ég sný mér við þá eru Sara og Eiki stungin af ÁN ÞESS AÐ SEGJA BLESS og dótið mitt er horfið. Þá byrjaði mitt netta móðursýkiskast þar sem ég hljóp út um allt að reyna að finna dótið mitt. Það fannst ekki og ég BRJÁLUÐ hljóp heim á hlýrabolnum, diglaði og dinglaði þar til Kristján vaknaði (lyklarnir voru í töskunni) og brotnaði algerlega niður í reiði-vonbrigða kasti yfir veskinu mínu og kápunni og blótaði um það bil ÖLLUM og sérstaklega helv. lýðnum á Pravda sem gerir ekkert nema drekka dópa og stela (ehemm það var ég algerlega staðráðin í).
Ok ég var að fá hringingu rétt áðan frá stelpu sem sagði mér að hún hefði tekið dótið af því að það lá bara þarna á gólfinu og hún var svo hrædd um að eitthver myndi taka það....... (ahahaha Pravda liðið var kannski ekki svo slæmt)........
|Hjördís|Skonsurnar|6:32 e.h.||