Jæja mín fersk og hress mætt til íÍslands. Við Birgitta erum að koma okkur vel fyrir á Dyngjuveginum, það var stór IKEA ferð í gær og eytt fullt af peningum þannig að íbúðin er ekki bara að verða heimilisleg heldur flott. Málið er að Birgitta er á stílhreinatímabilinu og allt verður að vera í stíl. Annaðhvort orð semútúr henni er stílhreint, lekkert eða smekklegt. Spurning hvort hún ætti ekki bara að fara að læra innanhúshönnun. Allaveganna ég er dauðhrædd að taka aukavinnu þar sem sumardagskráin okkar er svo þétt =) þannig að ég ákvað að setja hana upp aftur og bæta við og laga.
Drög númer :
00100002 að sumardagskrá skonsanna 14 júní árið 2006.
Fim.15 júní, hittingur hjá Söru í Rauðagerðinu.
Lau. 17 júní: allar að að hittast, farið niður í bæ. Börnin koma með.
Mán. 26 júní. Kaffihús klukkan 21. Allar að mæta með dagbókina. Þetta er háalvarlegur fundur sem rætt verður um hittinga út árið.Fim-Fös. 6-7 júlí Út á land með David
Lau. 8 júlí Partý hjá Söru á Laugarásveginum
Hugmyndir:
farið útað borgða með mæðrum okkar, kokteilboð á dynjuveginum, Shushi án bandorms, alvöru útileiga, verslunarmannahelgi, hópferð til Milano, lokapartý, kveðjupartý, afmælin í september, Tóta Anna og Sara. Innflutningspartý hjá Tótu og Steina og Jesúbarninu og fatlaðabarninu. Sumaklúbbar, riverrafting, Esjan, Diskókeila. Sumarbústaður og margt margt fleira.
Núna er bara ekkert annað í stöðunni að kommenta og taka frá þessa daga, sérstaklega þann 26 júní. Ef ekki verður stemmning að hittast á kaffihúsi þá getum við hisst heima hjá okkur Birgittu. Koma svo........Kommenta