Ég var að lesa bloggið hennar
Elínar Ellu og hún var með link á síðu sem hjálpar manni að finna
nafn á barnið sitt hehe það er að segja ef maður vill eitthvað óvanalegt ;)
Ég er að hugsa um að gerast extreme makeover kúnni. Fyrst í home edition en Smá vandamál ég reyndar á ekki hús en haldiði að þau væru ekki bara til í að byggja húsið frá grunni ég meina sum húsin eru hvor eð er tekin alveg í gegn að það er eiginlega ekkert eftir af gamla, örugglega bara auðveldara að gera nýtt. Ég vil fá geggjað einbýlishús ca. 250 fm. Náttúrulega allt þetta standard, sérherbergi fyrir stelpurnar, hjónaherbergi með risa sjónvarpi, les herbergi inn af því hey ég vil svona falið herbergi það er GEGGJAÐ. Eitthverjir leiðinlegir ættingjar að koma í heimsókn og þá get ég látið mig hverfa og Kristján þarf að sjá um gestina og enginn veit neitt ég er bara "ekki heima" híhí. Oh heyrðu en þá getur Kristján gert það líka o fokk nei þá má hann bara ekkert vita af my secret room ;) je líklegt me and my big mouth. ok svo náttúrulega risa herbergi fyrir Kristján og allt gadjetid hans hehe risa risa hann á ekkert smá mikið af dóti reyndar ekki eins mikið og ef við værum rík nei þá þyrftum við sennilega sér hús fyrir það. Eitt listaherbergi þar sem að ég "uppgötva sjálfa mig" ehemm ég er rosa listakona upprennandi söngkona, listmálari og skúlptúristi eða vott ever veit ekki hvað það heitir einu sinni en hey who´s tékking. (Og svo náttúrulega gagngrýnandi, ég er reyndar orðin nokkuð góð í því svona sjálflærð þú skilur híhí). Og þetta yrðu að vera sona soldlir ranghalar opið rými eins og hún Vala okkar talar alltaf um er ekki fyrir mig ég vil frekar fleiri hæðir og stiga mörg herbergi það er eitthvað svo kósí en reyndar yrði þau að henda inn einni þrifbusku og kannski einni eldabusku líka og já mig langar í einn gaur frá segjum Portóríkó til að sjá um fataskápinn minn (homma að sjálfsögðu hjálpa mér við mátun osfr.) Já ég held að þetta sé komið en þá vantar bara mjög háa reglulega innkomu á mánuði hey vó vó vó ég er alveg að tapa mér í þessu nýríka lífi ;) Ég gleymdi alveg eitt rosa kósí lítið spákonuherbergi, með svona marglituðum sjölum út um allt geggjuðum gluggatjöldum með glitri lítið borð og svona stóra þægilega púða til að sitja á og síðast en ekki síst eina SÓRA spákúlu í miðjuna á borðið. Þegar ég væri komin með fullkomna húsið mitt þá mætti fólkið í extreme makeover eitthvað sjúga og sprauta og gera mig að bimbó. Ég gæti kannski orðið blondína eins og þið hinar híhí. Ekki lengur svarti sauðurinn meeeeee.
Æ veistu ég held að þetta væri alltof mikið vesen hætt við þetta allt hahahaha. ;)