Eigandi hassmola getur vitjað hans hjá lögreglu í Vestmannaeyjum.
Eitt fíkniefnamál kom upp í Vestmannaeyjum um helgina en einhver fíkniefnaneytandi hafði gleymt hassmola sínum á borði inni á veitingastaðnum Lundanum. Starfsmaður Lundans, sem fann molann, kom honum í vörslu lögreglu. Viðkomandi fíkniefnaneytandi getur vitjað molans á lögreglustöðinni, að því er segir í dagbók lögreglu.
Hehe hvað er löggan eiginlega að pæla.....