föstudagur, nóvember 24, 2006
Hæ stelpur
Ég var að skoða dansnámskeið hjá
Jóni Pétri og Köru og líst ágætlega á, en námskeiðin eru 14 vikur, byrja að hausti og enda að vori. Það er samt hægt að fá námskeið fyrir t.d. saumaklúbba svo að þetta er ekki alveg útilokað en hér er
gjaldskráin þar er ca. 16 þúsund á mann 32 á par, einu sinni í viku í 14 vikur. Það er náttúrulega slatti peningur en samt þetta er allt pæling.
Það er líka hægt að fara á námskeið hjá
dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
Byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna byrjaði reyndar mánudaginn 13. nóvember og er klukkutími einu sinni í viku í 5.vikur Verð 11.900 kr.- fyrir parið, það er mikið ódýrara og styttra en það er kannski málið að fara á eitthvað létt til að byrja með og tékka hvenær næsta byrjar eða athuga hvort hægt sé að gera sérstakt námskeið fyrir saumaklúbbinn og makana okkar.
|Hjördís|Skonsurnar|8:47 e.h.||
fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Erum við aumingjar sem látum allt ganga yfir okkur!
Kæri lesandi.
Ýmislegt hefur gerst í þjóðmálum á síðustu misserum
sem ekki eru allir sáttir við.
Hvernig væri að sýna að við berum virðingu fyrir okkur,
kjósum ekki dæmda glæpamenn á þing, hvorki fyrrverandi
né núverandi og ekki heldur flokkinn sem styður þá.
Látum þetta ekki bara „reddast“, skilum frekar auðu en að kjósa flokkinn
og viðurkenna þannig heigulshátt okkar.
|Hjördís|Skonsurnar|11:18 e.h.||
fimmtudagur, nóvember 09, 2006
Hjartaáfalls borgarinn
Nú var að koma á markaðinn 8000 hitaeininga hamborgari! Það er eins og þrefaldur dagskammtur af hitaeiningum fyrir venjulega manneskju.
Borgarinn ber nafnið Quadruple Bypass og hann er fjórskiptur. Fjórar sneiðar af nautakjöti eru á honum eða um 1kg, þrjár ostasneiðar, beikon á öllum hæðum, smá kál og svo tómatur.
Staðurinn sem er ekki annt um líða fólks ber einnig nafn um það, en hann heitir The Heart Attack Grill. Þegar kúnnarnir eru búnir að borða of mikið, bjóðast þeir að keyra þá út í bíl á hjólastól.
|Hjördís|Skonsurnar|4:01 e.h.||
miðvikudagur, nóvember 01, 2006
Hvernig kaffi ert þú?
Frappuccino!
Þú ert jákvæður og nýjungagjarn einstaklingur sem hikar ekki við að gera óvenjulega hluti og klæðast litskrúðugum fötum. Þú ert týpan sem hleypur á eftir strætó langar leiðir með hrópum og köllum ætli hann að fara án þín.
Þú ert ískalt kaffi með mjólk, sykri og ísmolum, borið fram í háu glasi með röri.
|Hjördís|Skonsurnar|6:02 e.h.||