miðvikudagur, maí 31, 2006
Skólalok
Ég verð bara að segja vúhú þessi önn er búin sumarið byrjað og allt svo bjart eitthvað og fallegt. Ég er alltaf að hamast út um allt, það er endalaust að gera hjá konunni í búdda og alls kyns skemmtilegum hlutum. En já ég ætlaði bara að segja ykkur hvernig gékk
9 í dönsku
9 í íslensku
9 í félagsfræði
8 í ensku
8 í stærðfræði
8 í þýsku
er þetta ekki flott hjá konunni.
;)
|Hjördís|Skonsurnar|7:19 e.h.||
laugardagur, maí 27, 2006
Fra Söru
Þá eru bara prófin búin og sumarið komið....jesss
Já ég talaði við Siggu í síðustu viku og við ræddum margt og mikið og spjölluðum saman um hvað við gætum nú gert til að hafa sumarið skemmtilegt!
Okkur fannst alveg kjörið að hittast 17 júní og hafa þá skonsu-barnadaginn og skonsu-makakvöldið sem þú stakkst uppá Tóta því Sigga kemur einmitt heim 16 júní og langar að hitta okkur allar og okkur auðvitað hana líka Hvernig standa annars íbúðamálin hjá þér? Er þetta að verða klárt eða? Við gætum þá kannski kíkt til þín í nýju íbúðina um kvöldið eða bara í Rauðagerðið ef það verður orðið klárt eða bara e-ð annað? Líst ykkur ekki vel á að hittast 17 júní??? Eigum við ekki bara að slá því föstu??? JÚJÚ!!!
David kemur síðan mánudaginn 3 júlí og hann og Sigga fara saman aftur út mánudaginn 10 júlí svo hann verður bara hér eina helgi! Okkur fannst því henta vel, þar sem okkur langar með hann útá land og halda líka partí, að við myndum fara útá land eftir vinnu hjá fólki fimmtudaginn 6 júlí (allir sem geta að redda sér fríi á föstudeginum!!!) og tjalda eða fara í bústað og síðan nota föstudaginn í að gera e-ð skemmtilegt eins og fara á snjósleða, í river rafting eða e-ð annað skemmtilegt. Síðan myndum við koma heim á föstudagskvöldinu og hvíla okkur. Á laugardeginum verður Eiki svo 25 ára (og svo eru síðustu HM-leikirnir í fótbolta einnig þá helgi....strákarnir mega víst ekki missa af því sko) og við Eiki myndum þá halda partí á Laugarásveginum og sína David hvernig maður skemmtir sér í Reykjavíkinni!
Hvernig líst ykur á.....mér finnst þetta alveg perfektó.....hlítur að vera hægt að redda sér fríi á föstudeginum ef það er svona góður fyrirvari
En var ekki annars búið að ákveða saumaklúbb á þriðjudaginn næsta (23 maí) hjá þér Hjödda? Við getum þá líka rætt þetta betur þar!
Drög að sumardagskrá:
Þri. 23 maí SAUMAKLÚBBUR HJÁ HJÖDDU
?? júní HITTA AUÐI (þegar hún kemur, já hvenær kemurðu kona?)
Lau. 17 júní TÓTU-PARTÍ (dagur-börn og kvöld-makar, Sigga líka komin)
Fim-Fös. 6-7 júlí ÚT Á LAND (David með, fá frí á föstudeginum)
Lau. 8 júlí PARTÍ Á LAUGARÁRVEGINUM (David með)
Ooooo......... þetta er svo gaman, við verðum bara að vera duglegar svo að hittast og halda skonsukvöld, grillpartí o.fl. í sumar, þetta gengur ekki lengur, ég sá ykkur síðast í MARS!!!
Endilega kommentiði elskur........ fá alvöru undirtektir hérna
Knús Sara :)
|Hjördís|Skonsurnar|11:57 f.h.||
fimmtudagur, maí 25, 2006
Virkar þetta?
Sæta afmælisstelpan mín
|Hjördís|Skonsurnar|8:54 e.h.||
miðvikudagur, maí 10, 2006
It's now or never....
Jæja þá er prófatörnina að verða búin, æ hvað það er ágætt. Bara 35% próf á morgun í enskum orðaforða, það verður ekkert mál (vonandi). Svo er ég að pæla í því hvað ég ætti að gera til að halda upp á að þessi önn sé búin!!! Eitthverjar hugmyndir? Ef ég næ öllu á þessari önn sem ég á fyllilega von á þá er ég komin með 81 einingu .... vúhú komin með meira en helming.
|Hjördís|Skonsurnar|8:29 e.h.||
föstudagur, maí 05, 2006
Saumaklúbburinn féll niður
Fyrir þá sem vita ekki þá féll saumaklúbburinn niður.
Allt í góður með það en við erum að pæla á 23. maí
Hvað segiði um það gellur?
|Hjördís|Skonsurnar|10:34 e.h.||
Jæja já jæja, já jæja..Þá er það official ég verð næstu 3 árin í Milano að læra innanhús hönnun. Ég fór á miðvikudaginn og borgaði og nú er ekki aftur snúið. Apríl er búin að vera erfiður en rosalega skemmtilegur. Fjölskyldan kom í heimsókn og voru þau hjá mér í 10 daga. Síðan var það brúðkaupið hjá Samantha og vikuferðin til Tuscany. Eftir að ég kom heim úr ferðalaginu þurfti maður að taka sér smá slökun, ferðin voru 6 nætur og 7 langir daga þar sem við skoðuðum gamlar borgir, rústir og fleira. Síðan á kvöldin var annaðhvort farið útað borða eða haldin veisla heima. Ég fann það mikið í ferðinni hvað ég saknaði ykkar. Ég var sú eina sem talaði íslensku þannig að það gagnaðist mér lítið þó ítalarnir og ameríkanarnir voru ágætir þá hefði verið miklu skemmtilegra að fara með ykkur öllum í svona ferðalag. Við vorum með rosalega flott hús, arinnofn og langborð. Svona ferðalag kostar nefnilega ekkert svo mikið, væri sjúklega gaman að fá ykkur einhverntímann og við tækum pakkann á þetta. En við höfum 3 ár til að finna okkur tíma í það.Tóta mín, já skapið er þarna ennþá og sakna ég þín líka. Ég hef ekki talað við þig almennilega í langan tíma. En það styttist nú í eitt gott spakmannspjall hjá okkur. Ég verð að vinna í dagvinnu í sumar, alla virka daga frá 9 til 18, engar helgar, engar nætur, ekkert RUGL… Plús ég verð ekki að vinna á bilanadeildinni heldur verð ég að selja síma og þjónustur. Ég er sammála Söru við verðum að vera duglegar í sumar að hittast og við fljótlega verðum að finna okkur helgi sem við allar getum pottþétt verið lausar og farið í útileigu saman. Því fyrr sem við veljum helgi því léttara verður að finna pössum fyrir litlu krílin. Ég sakna ykkar allra og ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur aftur. See ya soon, kveðja Jesúbarnið.
|audibet|Skonsurnar|9:06 e.h.||
Ég segi uppp.....Ég segi upp minni aðild að skonsunum ef við förum á blog.central.is ég er frekar til í að skoða aðra möguleika en ALDREI blog.central.is......... Við getum alltaf breytt frekar þessari síðu, það tók nú nógu helvítis langan tíma að fá alla til að læra á þetta eða koma sér í það að skrá sig og svo framvegis. Ekkert mála að búa til síðu sem er svipuð og þessi sem þú bjóst til Alma. Það er vel hægt að búa til myndasvæði og linka það við þessa síðu, breyta henni eða setja inn linka og hafa þetta alvegs og við viljum. Við erum skonsurnar við erum ekki skonsess. Kommenta kerfið á blog.central er ömulegt og virkar oftar en ekki og allt stutfullt af auglýsingum og spami. Ég get vel stækkað þessa síðu gert meira pláss fyrir textann og svo framvegis. Birgitta eins og ég sagði í byrjun ef þú vilt aðra mynd af þér sendu mér hana þá. Minnsta mál að breyta. Spurning í sumar að við tökum einn saumarklubb og ég kenni ykkur að setja inn myndir, Hjördís jafnvel gæti gert það enda setur hún inn myndir á síðuna vikulega. Það er minnst mál að setja inn myndadasvæði. Hægt að fá þau ókeypis á mörgum stöðum, vandamálið með svoleiðis að þær ganga hægar og eru fullar af auglýsingum eða við jafnvel gætum bara fjárfestum í einu fínu myndasvæði, kostar okkur kannski 200 kalla á mann ári. Eða farið yfir á 123.is þar eru myndasvæði... bloggsvæði og hægt að búa til allskonar síður og jafnvel læsa síðunni. Þá gætum við rætt um allskonar hluti sem við kannski myndum ekki vilja að aðrir myndu lesa. Ég segi höldum áfram hér, og leggjum til að breyta síðunni eða flytjum okkur á 123.is ef við viljum læsa síðunni og hafa þetta bara útaf fyrir okkur. Enda var þetta í upphafi bara fyrir okkur til að halda sambandi á meðan fólk er fast heima með börn eða statt annarstaðar en á yndislegu eyjunni okkar. Viðhalda vinskapnum, setja saman saumaklúbbi og hittinga. Ræða um þau málefni sem brenna okkur á vörum. Ég veit að oft þegar mér er brennur eitthvað á hjarta þá virðist ég vera að skammast en það er ekki ætlunin. Ég bara hef sterka skoðun á þessu og HATA blog.central.is.. LOVE Jesúbarnið
|audibet|Skonsurnar|1:24 f.h.||
fimmtudagur, maí 04, 2006
Saumaklúbbur... saumaklúbbur
Muna eftir saumaklúbbnum á föstudagskvöld
Heima hjá mér
Allir að koma
ble
|Hjördís|Skonsurnar|7:42 e.h.||
miðvikudagur, maí 03, 2006
Saumaklúbbur.... saumaklúbbur...
Hæ hæ það er saumaklúbbur hjá mér á föstudaskvöld kl. 20:00.
Við skulum endilega pæla í þessu heimasíðumáli þar.
Það er mikið betra að taka ákvörðun þannig í sameiningu.
Hverjir ætla að koma???
kv. Hjördís Pördís
|Hjördís|Skonsurnar|10:02 e.h.||