þriðjudagur, nóvember 29, 2005
Vups
Ok stelpur fariði inn
kvikmynd.is og opnið 1.Allt getur gerst í sjónvarpi á topp 10 listanum. Sirka í miðjunni hægra megin. Þetta er á hollensku eða eitthvað en það skiptir ekki máli fylgist bara mjög vel með.
|Hjördís|Skonsurnar|12:11 f.h.||
sunnudagur, nóvember 27, 2005
Hverjum hefði dottið þetta í hug...... Sarcastic Fokker
|audibet|Skonsurnar|11:23 e.h.||
Hehe eg verð bara að segja að þetta kom a ovart..
|Hjördís|Skonsurnar|9:58 e.h.||
laugardagur, nóvember 26, 2005
Væmið shitt en ég lét mig hafa það
Þegar ég sá hvað Alma hafi skrifað þá fékk ég IDOL hroll og hélt að þetta myndi enda ílla. En þegar ég sá hvað þetta var krúttlegt og gaman að sjá hvað öðrum finnst þá ákvað ég að svíkja ykkur ekki og grafa, grafa djúpt í hjartað mitt og finna þessi yndislegu orð. Ég mun bara skrifa þetta einu sinni og síðan verður þetta ekki nefnt aftur. Hvorki í ræðum né til opinbera birtingar. Eina undirtekningin er þegar ég er dauð og viljið minnast þess að ég VAR tilfinningarvera. OK skilið, búið ykkur undir þetta.
Tóta: Besta vinkona mín, alveg ótrúlega góðhjörtuð og blíð kona, já ég sagði kona. Síðustu mánuði hefur Tóta orðið að þessari ótrúlega umhyggjusömu og ábyrgðafullu konu. Auðvita hjálpa það til að vera orðin mamma en það er meira en það. Tóta er velgefinn og ef hún leggur sig allra fram veit enginn hvar hún mun enda(þarmur). Hún á alltaf stórann stað í hjarta mínu enda hef ég upplifað alls með henni, sorg, gleði, og næstum því dauða.(Akureyr2004) og þess vegna elska ég hana.
Sigga: Göngugarpurinn, grændrykkjuteþambarinn og frú heilsusamleg Sigga Huld. Sigga lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Sigga fer sínar leiðir og það er ekkert fær hana til að stoppa. Ein af mínum bestu trúnaðarvinkonum og hægt er að ræða við hana um allt. Hún er smart, lekkert og agalega elegant kona/stelpa. (Sigga þekkir orðin) Rosalega vel gefinn og áhugasöm um allt og alla og ég elska hana.
Sara: Tölur, reikninga og formúlu. hún ert undursamlega fyndin með reikningana sína og ætti að hugsa sér að vera uppistandari ef lyfjafræðin klikkar. Ég er ennþá að hlægja að reikingar reikningunum hennar =) Hún er almennileg, vel gefin og skemmtileg. Alltaf til í góðar umræður hvort sem það er um daginn, veginn eða djúpar áhyggjur og þess vegna elska ég hana.
Birgitta: Vó bara því hún veit að ég er að skrifa þetta núna verð að gera eitthvað sjúkt væmið um hana. Birgitta litla rassgatið mitt, gera núna, spyrja seinna, þetta reddast litla rassgatið mitt. Birgitta er voðalega ákveðinn mennaskja og ef hún fær flugu í hausinn þá er stundum erfitt að tala hana til. Kannski því hún er meistarinn að tala fólk til. Hún getur fengið alla til að gera allt, NEMA mig. Hún veit það líka og að hún getur ekki fengið mig stundum til að gera hlutina eins og hún vill, það fer geðveikt í taugarnar á henni. Hún er ungur andi og á erfitt að ákveða sig með karlpeninginn. En eitt er víst að hún er traust vinkona, ef ég segi að hún sé skemmtileg þá mun hún tala um það endanlaus, þannig að ég ýja frekar bara af því. Með því að segja að það sé gaman að hanga með henni, hvort það sé í chilli, CHILLI eða í brjáluðu fjöri. Hún er litla yndið mitt sem mér finnst ég alltaf þurfa að passa uppá og þess vegna elska ég hana.
Hjördís: Furðulega vinkona mín, henni myndi ég treysta fyrir öllum mínum dimmustu leyndamálum og vita það að hún mundi aldrei dæma mig. Ótrúlega lífsgröð, nei meina lífsglöð og sterk persóna. Hún lyftir áhyggjum þínum, vinnur úr þeim og skila þeim á settlegan hátt til baka með leiðarvísir. Hún hefur kennt mér að treysta og þótt hún hafi stundum skrítnar skoðanir þá virði ég þær því hún hefur alltaf skýringu á afhverju hún gerir hlutina svona en ekki hinsegin. Þetta er það fyrsta sem mér dettur í hug ef ég væri spurð af hverju ég elskaði Hjördísi.
Brynja: Litla hjálpalausa vinkona mín eða ég hélt. Brynja er það svo þvert á móti. Hún yfirstígu allar hindranir sem henni verða á vegi. Er sú fljótasta sem ég veit um að aðlaga sig, hvort það sé húsnæðismál, atvinnu eða barneignir. Það tók hana ekki langann tíma að verða mamma, 1 sólarhring eða svo. Hún er litskrúðug manneskja sem kemur manni alltaf á óvart og er þægilegt að hafa hana í kringum sig og þess vegna elska ég hana.
Alma: Alma býr í sínum eigin litla heimi. Þegar hún syngur þá gerir hún það eins og það sé enginn að hlusta. Þegar hún tekur sér eitthvað fyrir hendur, þá klárar hún það og skilar frá sér vel unnu verki. Hún er ofurmamma og elskar strákana sína meira en allt annað í heiminum og lætur alla vita af því. Hún er góð og sönn vinkona og þess vegna elska ég hana.
Anna: Anna rokkari, Anna panna, AnaBanana..... Anna er léttleikinn uppmálaður. Alltaf svona til í ruglið en er samt á jörðinni allan tímann. Hún er fjölskyldu mamma og hlakka ég til að fara með henni og Einari í fjölskylduferðir í framtíðinni. Hún er traustsins verður vinur og skemmtileg og þess vegna elska ég hana.
að lokum vill ég segja að þið eruð allar góðar vinkonur mínar, fallegar og eins og Brynja sagði það best. Hressar og skemmtilegar og þess vegna elska ég ykkur.
|audibet|Skonsurnar|9:42 e.h.||
föstudagur, nóvember 25, 2005
Kafffffffffiii
|Hjördís|Skonsurnar|5:28 e.h.||
Fra mer til þin.
Jæja þá er að grilla .... nei djók en þetta er í alvöru.
Auður er mesta skass sem maður lendir í og stundum veit maður ekki hvort hún er að fara að knúsa mann eða hálsbrjóta. Hún er frábærlega hugmyndarík, stórkostleg listakona Og maður veit það ef henni finnst maður ekki fyndinn. Hennar skoðanir skipta mig öllu og hún hefur heilindi sem enginn hefur.
Sara er fiðrildi sem flögrar um með ótrúlega stórar og flottar hugmyndir í hausnum. Hún hefur tvo persónuleika þann ljóshærða og þennan dökka undir hehe. Hún lifir í öðru tímabelti en nær samt alltaf að skila af sér því sem hún ætlar. Það er fólk eins og Sara sem olli því að mannkynið dó ekki út strax eftir að það kom fram.
Tóta er hin ókrýnda fegurðar drottning, alltaf með ljósmyndalúkkið tilbúið og veit ekkert betra en þegar fólk dáist að henni. Innra með henni býr skemmtileg og metnaðargjörn manneskja og það elska hana allir nákvæmlega eins og hún er. Hún gerir heim allra í kringum sig litríkari.
Smáskammta Sigga (bara smá) er örugglega hjartahreinasta manneskja sem til er. Hún er alltaf til í að hlusta og alltaf til í að það sé hlustað á sig sama hvort hún viti hvað hún er að tala um eða ekki ahahahaha. Hún er falleg eins og engill en getur bitið FAST frá sér. Hún er, var og verður alltaf Sigga mín.
Brynja er manneskja sem maður vill ekki hitta mjög fulla, maður endar krambúleraður þó svo að hún hafi bara ætlað að knúsa mann. Hún er rosalega heppin en jafnframt ein sú óheppnasta sem ég veit um. Hún situr prúð og hljóð og heldur að maður taki ekki eftir því að hún er ekki svona mikil dama heldur bara svona steikt og utan við sig ahahahahaha. Hún er sannur vinur.
Birgitta ó elsku Birgitta þú ert snillingur. Þú er algerlega fædd á röngum stað á röngum tíma en hvað sem þú tekur þér fyrir hendur reddast alltaf allt og þú skemmtir þér konunglega með hið ókunna og það er örugglega ekkert skemmtilegra en að ferðast með þér vegna þess að maður veit aldrei í hvaða ævintýrum maður lendir. Þú ert ferðalangur sem átt þvílíkt bjarta framtíð fyrir þér og ekkert smá spennandi. Ég hlakka til að hitta þig það er svo langt síðan síðast.
Anna Dóra er fyndnasta manneskja í heimi og hún á fyndnasta kærasta í heimi. Hvert sem hún fer fylgir henni hamingja og gleði. Anna Dóra er alltaf hrein og bein. Hún hefur ótrúlegt ímyndunarafl (eins og að ætla að fara í verslunarferð með mömmu sinni og eiga enga peninga fyrir því ahahahaha), og ég virði allt sem hún segir ekki endilega af því að ég er sammála heldur af því að hún talar alltaf frá hjartanu.
Alma er þessi manneskja sem gefst aldrei upp. Þegar manni fannst að lífið væri að yfirbuga hana þá fann hún sér sína eigin leið til að halda áfram. Alma er mikið sterkari en mann órar fyrir og hún er manneskja sem myndi berjast út í rauðann dauðann fyrir þá sem henni þykir vænt um. Alma er manneskja sem myndi bjarga heiminum ef hún hefði nóg og góða ástæðu til þess.
|Hjördís|Skonsurnar|4:29 e.h.||
fimmtudagur, nóvember 24, 2005
Sælar Skonsur
Ég að klára mína seinustu næturvakt hjá símanum, allaveganna áður en ég fer út. Aðeins 41 dagur þangað til að ég leggíhann..... Ég er nú aðeins farinn að fá í magann, enda flýgur tíminn.Ég tók mér bessaleyfi og bauð Helgu Sif að vera með í Skonsunum. Helga Sif hefur búið á Ísafirði síðustu ár en alltaf haldið smá sambandi við okkur. Hún á eitt barn og hefur verið að vinna sem lögga á Ísafirði. Núna hefur hún og kærastinn hennar Siggi ákveðið að flytja í bæinn. Vóhhh mér finnst eins og ég sé að kynna nýjan nemanda og ég er kennarinn. Allaveganna Birgitta hvar ertu? Tóta er mýsla ennþá mesta krútt í heimi. Brynja hvað á hann að heita? Hjördís hvað er að frétta að handan? Anna hvað er uppi? Sara hvernig gengur að læra? Sigga ertu búin að heyra meir í Davíð? Alma er uppþvottvélin komin í lag?
Þetta er yndislegt
|audibet|Skonsurnar|6:09 f.h.||
sunnudagur, nóvember 20, 2005
Party like never before
Vá stelpur ég er að meina það. Ég held að ég hafi ekki verið svona þunn síðan fyrir börn. Við erum að tala um daginn eftir æl og læti, en ef það er mælikvarði á hvað var gaman þá stenst sá kvarði algerlega ;) . Ég vil þakka Söru kærlega fyrir þetta frábæra partý fámennt en bara því betur góðmennt hehe. Ekki nóg með að við skyldum rifja upp gamla tíma), heldur upplifðum við gamla tíma (skriðum heim um 7 ekki djók. rosalegt, rosalegt........ ég er ónýt. En Sara ég hafði ekki skemmt mér svona vel niðri í bæ í eitthver ár held ég bara þetta var snilld.
|Hjördís|Skonsurnar|9:50 e.h.||
miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Brandari dagsins
Af hverju var BUSH svona viss um að írak væru með kjarnorkusprengjur?
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Af því að hann var með kvittunina.
ahahahahaha
|Hjördís|Skonsurnar|5:13 e.h.||
föstudagur, nóvember 11, 2005
Jeg vil har en smørrebrød og en pølse.....
Jæja skonsur ég og Sigga erum núna á eldgömlu bókasafni hér í midborg Kaupmannahafnar. Sigga er ad læra svo ad hér kemur thad sem allir hafa bedidi eftir. Ég kom á midvikudag um 7 leitid, vid fórum heim med risaferdatöskuna mína (upp á 5 hæd jakk) nei nei gód hreyfing. Svo var stefnt á veitingahús og vid fengum okkur salat, hvítvín og ískaffi (sem reyndist bara vera kalt vatnsblandad kaffi en hvad um thad, thad var drekkandi). Næst var komid vid á bar sem er ætladur erlendum háskólanemum og thar var fengid sér bjór á mann. Vid skelltum okkur smá stund á dansgólfid thar til ad farid var ad spila Mambó nr.5 og thá var tími til ad láta sig hverfa heim. Í gær stefndum vid á Strikid. Ég held ad thad sé ekki neinna útskýringa vid ad bæta. (Vid vitum allar hvad gerist thar.) ;) En thegar ég kem heim thurfum vid sennilega ad flytja í stærri íbúd hehe úps..... Ad thví loknu var farid á rosa kósý kaffihús sem vid sátum á í örugglega 3 tíma ja det var en meget godt kaffe. Vid vorum ekkert í studi til ad vera blinfullar og vitlausar svo ad thad var bara farid heim og horft á My big fat Greek wedding. Mjög skemmtileg mynd. Thá víkur sögunni ad deginum í dag. Hann byrjadi eitthvern tímann um 10 hjá siggu en 12 hjá mér ahhhh. Thá var nottlega dressad sig upp og haldid af stad á kaffihús hehe. Svo komum vid hingad. Á eftir ætlum vid í hid fræga Tívolí og eftir thad í bíó. En hvernig sú saga fer fáid thid ad vita seinna....
|Hjördís|Skonsurnar|4:50 e.h.||
fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Nýr linkur hjá okkur
Setti inn linkinn á barnalandssíðuna hennar Mýslu Þorsteinsdóttur ->
Take a Look <-
|audibet|Skonsurnar|8:19 f.h.||
miðvikudagur, nóvember 09, 2005
Mýsla Þorsteinsdóttir
Stelpur ég verð að segja ykkur að littla krúttið þeirra Tótu og Steina er fullkomin. Svo hryllilega mikil dúlla að manni langar til að eiga hana, ekki það að það sé eitthvað farið að kveika neisti á barneignir og er langt fjarri því ennþá, en maður getur ekki ímyndað sér hvernig þetta sé að eiga barn. Mér finnst ég nú eiga smá í henni, og skrítið hvað manni er fljótt að þykja vænt um einhvern sem maður hefur aldrei séð áður. Finnst núna eins og hún hafi alltaf verið til enda er þetta bara falleg framlengin af þeim Tótu og Steina. En hér með vill ég óska ykkur aftur innilega til hamingju með þennan áfanga í lífinu. Þetta er stórt skref og er ég hamingjusöm að fá að upplifa það með ykkur. Heyr heyr síðan eiga allir að skála og hrópa húrra. Húrra Húrra Húrra......... Húrra.
|audibet|Skonsurnar|6:26 e.h.||
þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Hafur er til einskis vansa sparðar.
Vá, það er bara að líða að því, ég er að fara til Danmerkur á morgun. Díí hvað mig hlakkar til. Ekkert smá spennt. Mér finnst bara ótrúlegt að það sé á morgun en ekki eftir mánuð. Stelpur ég er að deyja. Ohh það verður svo gaman ég hef aldrei komin til Kaupmannahafnar. Köben hír æ kom. ;)
|Hjördís|Skonsurnar|2:46 e.h.||
sunnudagur, nóvember 06, 2005
Klukk frá Hjördísi.
Hvað er klukkan? Hún er 20:31
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Hjördís Erna
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Hjördís, Hjödda, mamma, Dídí, og svo slatti í viðbót sem ég man ekki í augnablikinu.
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Á síðustu afmælisköku voru sennilega 10 sem sagt langt síðan.
5. Hár? Stutt, dökkt og allt út í loftið.
6. Göt? tvö í eyrum sem ég er nýbúin að opna aftur.
7. Fæðingarstaður? Reykjavík
8. Hvar býrðu? Ásvallagötu 29.
9. Uppáhaldsmatur? Kjúklingasalat.
10. Einhvern tímann elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Já, þegar Kristján hagaði sér eins og fífl, þá fer ég að grenja yfir að vera svona mikið fífl að elska svona mikið fífl.
11. Gulrót eða beikonbitar? Gulrót.
12. Uppáhalds vikudagur? Föstudagur
13. Uppáhalds veitingastaður? Hereford og Ítalía.
14. Uppáhalds blóm? Öll nema páskaliljur :þ (ógeðsleg lykt)
15. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Pool og billjard.
16. Uppáhalds drykkur? Mangó te.
17. Disney eða Warner brothers? Hef ekki skoðun.
18. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? Burger Prince.
19. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Parket.
20. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Begga í Búdda.
21. Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Ég vil reyndar aldrei botna kreditkortið en þá myndi ég velja úti markað bara eitthver staðar.
22. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Horfi á sjónvarpið eða fer í tölvuleik.
23. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Hefurðu prófað þetta fyrir húðina á þér?????
24. Hvenær ferðu að sofa? Ca. 11.
25. Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Ummm Brynja.
26. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Vil ekki nefna nein nöfn...
27. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Csi.
28. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Kristjáni á Ítaíu.
29. Ford eða Chevy? Oj amerískir bílar.
30. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? Núna er klukkan 20:44 svo ég var 13 mínútur.
|Hjördís|Skonsurnar|9:44 e.h.||
fimmtudagur, nóvember 03, 2005
Draft
Alma ég var að skoða póstana í edit posts og tók eftir að það eru tveir drafts eftir þig vistaðir þar einn untitled og einn urrrrrrrrr sem hefur sennilega verið forpóstur DEM ég las hann og þar var soldið harðar tekið til orða ;) ég get ímyndað mér að það hafi verið mjög pirrandi þegar pósturinn kom ekki inn á síðuna, en það er ekkert mál að breyta draft í publisht post.
|Hjördís|Skonsurnar|11:23 e.h.||
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
SKULDLAUS
HVað haldiði ekki bara að ég er orðin skuldlaus. Á reyndar ekki mikinn pening þessi mánaðarmótin eða eitthvað í kringum 500 kall eða svo hahahahahah en ég skulda engum neitt...... Vúhúuuuuuuuu. Ég skulda sjálfum mér reyndar það að hreyfa mig meira but thats ALL folks. Ég er hef núna bara þrjár útborganir til að safna mér fyrir ítalíu og verð ég að vera dugleg að vinna núna. Skipuleggja tímann vel og vinna eins og maniac. Ég er líka að pæla með gamlárs, við verðum alltaf svo mikið fyrir vonbrigðum. Hvernig væri bara að halda partý á laugalæknum og þá bara frekar bara gera eitthvað öðruvísi í þetta skiptið. Komiði endilega með hugmyndir, þema eða eitthvað sem við getum gert og þá allar saman, ekki sundur og í nokkrum hópum eins og alltaf.
|audibet|Skonsurnar|2:58 f.h.||
þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Einn dag fór gömul kona með fulla tösku af peningum í banka.
Við afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala við bankastjórann, um að opna sparireikning: ''Þetta eru miklir peningar, þú skilur.''
Eftir talsverðar rökræður var konunni fylgt til bankastjórans.
Bankastjórinn spurði um upphæðina sem konan vildi leggja inn.
Hún sagði honum að það væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi töskunafyrir hann. Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um hvaðan allir þessir peningar kæmu.
“Kæra frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga þú hefur
- hvernig stendur á því?”
Gamla konan svaraði honum “Mjög einfalt. Ég veðja!''
“Veðja?'' endurtók bankastjórinn, “hvers konar veðmál?''
Gamla konan svaraði: “Jah, allt mögulegt. Til dæmis, veðja ég við þig, upp á 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!”
Bankastjórinn fór að hlæja og sagði: “Það er fáránlegt! Á þennan hátt getur þú aldrei unnið svona mikla peninga.”
“Jæja, eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn mér inn peningana. Ert þú tilbúin til að taka þátt í þessu veðmáli?”
“Auðvitað!” svaraði hann. Það voru jú miklir peningar í húfi.
“Ég veðja semsagt 25.000 evrum uppá að eistun á mér séu ekki
ferköntuð.” Gamla konan svaraði: “Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir peningar, má ég þá koma við á morgunn kl. 10:00 með lögfræðinginn minn,
svo að við höfum líka vitni?” “Auðvitað!” Bankastjórinn samþykkti.
Um nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði
ýtarlega á sér eistun, tímunum saman. Fyrst öðrumegin svo hinumegin. Að lokum með hjálp einfalds prófs varð hann 100% öruggur. Hann myndi vinna veðmálið, alveg viss!
Morguninn eftir kom gamla konan, kl. 10:00 í bankann með
lögfræðinginn sinn. Hún kynnti mennina tvo hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá 25.000 evrur.
Og upp á nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að eistun á sér
væru ekki ferköntuð. Eftir það bað hún hann um að taka niður um sig buxurnar til að skoða málið (punginn) einu sinni.
Bankastjórinn tók niður um sig buxurnar, gamla konan kom nær, skoðaði punginn í rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún mætti koma við eistun.
“Mundu að það eru miklir peningar í húfi.”
“O.K.” sagði bankastjórinn öruggur.
“Þetta er 25.000 evra virði og ég skil vel að þú viljir vera viss.”
Þá kom konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa sér.
Þá tók bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var farinn að berja hausnum á sér við vegginn.
Bankastjórinn spurði konuna: “Hvað er að lögfræðingnum þínum?”
Hún svaraði: “Ekkert, ég veðjaði við hann uppá 100.000 evrur að ég skildi í dag kl. 10:00 hafa eistu á bankastjóra í hendi mér.
|Hjördís|Skonsurnar|8:40 e.h.||
Finnst mér oft eins og tíminn
Vá hvað er gaman að allir séu að skrifa á síðuna, þvílík breyting. Áður kíkti ég svona 2 í viku á síðuna en núna 2 á dag og það er alltaf komið eitthvað nýtt. Alger snilld. Ekkert smá stolt af okkur ;) Ég er núna heima og Lára er á leikskólanum ég sver það ég er bara að bíða þangað til klukkan er orðin 11:40 þá get ég lagt af stað að sækja hana. Ohh ég er svo mikill aumingi. Maður fattar líka þegar þetta gerist að nú er ekki við snúið hún er að fara AÐ HEIMAN. Nei smá djók ein í panikki. ahahaha
P.s. Tóta hvernig ertu eitthvað að gerast?? Er að springa úr forvitni....
|Hjördís|Skonsurnar|11:55 f.h.||