mánudagur, júlí 17, 2006
Ég er komin heim í heiðardalinn....
Jæja þá er litla familían komin heim eftir helgi á Höfn í Hornafirði. Eins og kunnugir vita þá var Arna vinkona mín að gifta sig og það var magnað gaman, skemmtilegasta gifting sem ég hef farið í (nema náttúrulega mín eigin) og rosa gaman að vera í útilegu með Kristjáni og stelpunum. En goooooott að koma heim.
|Hjördís|Skonsurnar|12:18 f.h.||
mánudagur, júlí 10, 2006
Græn eru laufin og grasið sem grær
Æ nú erum við búin að missa siggu okkar aftur. Sem betur er er það ekki í langann tíma. Ég er á fullu að læra fyrir sögu 103 svo ég þurfi ekki að vera í bekk með 16 ára krökkum. Ekkert meint á móti þeim nema bara hávaðinn og athyglisleysið sem valda skömmum frá kennaranum gerir tímana óþolandi. hehe ég var óþolandi 16 ára, alltaf að tala í tímum og senda miða, eða þá sofa og fylgjast ekki með ohh hræðilegur nemandi en xvona er þetta, maður þroskast..... eða eitthvað.....
Jæja best að fara að borða geggjaða kjúklingaréttinn sem Kristján var að meika. ble :)
|Hjördís|Skonsurnar|6:20 e.h.||
miðvikudagur, júlí 05, 2006
Sumarbústaðaferð
Sumarbústaðarferð í Miðhúsaskóg.
Aðeins lengra en Laugarvatn.
Hringið í Siggu ef þið eruð týnd.
|Hjördís|Skonsurnar|9:09 e.h.||
mánudagur, júlí 03, 2006
----: Afmæli :----
ÉG átti afmæli í gær, ég átti afmæli í gær, ég átti afmæli ég Hjördís.........
ég átti afmæli ííííiííííí gææææææææærr
;)
|Hjördís|Skonsurnar|8:48 e.h.||