Ég verð nú að segja að það er varla hægt að skilja ykkur eftir heima á íslandi einar. 5 færslur á 6 mánuðum og þær eru allar skrifaðar af Hjördísi.
Þessi síðar er í algörum blóma
Ég ver nú að viðurkenna að ég hef haft smá heimþrá og er farin að telja niður. Síðustu daga hef ég verið að gera íbúðina mína fína, búin að mála herbergið mitt og nokkur IKEA húsgögn verið smellt saman. Ég skal smella nokkrum myndum af þegar allt er tilbúið. Annars á ég að vera á fullu núna að klára lokaverkefnið mitt sem ég þarf að kynna þann 3 júlí. En eins og jesúbarnið segir alltaf; "Á morgun er dagurinn, á morgun byrja ég ________________".
Sigga til hamingju með útskriftina, ég breytti fluginu mínu og mun ég lenda þann 4 júlí.
Ég hlakka til að sjá ykkur allar og vona að þið lesið þetta áður en ég kem heim, sýnist umferðin á þessari síðu vera soldið hæg.
Kommentið endilega hvað þið saknið mín mikið, það er vel þegið.
Kveðja
The Geometrical QUEEN aka tækniteikningar snillingur aka fríhendisteikningarfatlaðieinstaklingurinnfráíslandi AUÐUR
Efnisorð: Á-ríðandi