Ég var að skoða dansnámskeið hjá
Jóni Pétri og Köru og líst ágætlega á, en námskeiðin eru 14 vikur, byrja að hausti og enda að vori. Það er samt hægt að fá námskeið fyrir t.d. saumaklúbba svo að þetta er ekki alveg útilokað en hér er
gjaldskráin þar er ca. 16 þúsund á mann 32 á par, einu sinni í viku í 14 vikur. Það er náttúrulega slatti peningur en samt þetta er allt pæling.
Það er líka hægt að fara á námskeið hjá
dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
Byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna byrjaði reyndar mánudaginn 13. nóvember og er klukkutími einu sinni í viku í 5.vikur Verð 11.900 kr.- fyrir parið, það er mikið ódýrara og styttra en það er kannski málið að fara á eitthvað létt til að byrja með og tékka hvenær næsta byrjar eða athuga hvort hægt sé að gera sérstakt námskeið fyrir saumaklúbbinn og makana okkar.