Jæja þá er litla familían komin heim eftir helgi á Höfn í Hornafirði. Eins og kunnugir vita þá var Arna vinkona mín að gifta sig og það var magnað gaman, skemmtilegasta gifting sem ég hef farið í (nema náttúrulega mín eigin) og rosa gaman að vera í útilegu með Kristjáni og stelpunum. En goooooott að koma heim.