Jæja já jæja, já jæja..Þá er það official ég verð næstu 3 árin í Milano að læra innanhús hönnun. Ég fór á miðvikudaginn og borgaði og nú er ekki aftur snúið. Apríl er búin að vera erfiður en rosalega skemmtilegur. Fjölskyldan kom í heimsókn og voru þau hjá mér í 10 daga. Síðan var það brúðkaupið hjá Samantha og vikuferðin til Tuscany. Eftir að ég kom heim úr ferðalaginu þurfti maður að taka sér smá slökun, ferðin voru 6 nætur og 7 langir daga þar sem við skoðuðum gamlar borgir, rústir og fleira. Síðan á kvöldin var annaðhvort farið útað borða eða haldin veisla heima. Ég fann það mikið í ferðinni hvað ég saknaði ykkar. Ég var sú eina sem talaði íslensku þannig að það gagnaðist mér lítið þó ítalarnir og ameríkanarnir voru ágætir þá hefði verið miklu skemmtilegra að fara með ykkur öllum í svona ferðalag. Við vorum með rosalega flott hús, arinnofn og langborð. Svona ferðalag kostar nefnilega ekkert svo mikið, væri sjúklega gaman að fá ykkur einhverntímann og við tækum pakkann á þetta. En við höfum 3 ár til að finna okkur tíma í það.Tóta mín, já skapið er þarna ennþá og sakna ég þín líka. Ég hef ekki talað við þig almennilega í langan tíma. En það styttist nú í eitt gott spakmannspjall hjá okkur. Ég verð að vinna í dagvinnu í sumar, alla virka daga frá 9 til 18, engar helgar, engar nætur, ekkert RUGL… Plús ég verð ekki að vinna á bilanadeildinni heldur verð ég að selja síma og þjónustur. Ég er sammála Söru við verðum að vera duglegar í sumar að hittast og við fljótlega verðum að finna okkur helgi sem við allar getum pottþétt verið lausar og farið í útileigu saman. Því fyrr sem við veljum helgi því léttara verður að finna pössum fyrir litlu krílin. Ég sakna ykkar allra og ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur aftur. See ya soon, kveðja Jesúbarnið.