Ég segi uppp.....Ég segi upp minni aðild að skonsunum ef við förum á blog.central.is ég er frekar til í að skoða aðra möguleika en ALDREI blog.central.is......... Við getum alltaf breytt frekar þessari síðu, það tók nú nógu helvítis langan tíma að fá alla til að læra á þetta eða koma sér í það að skrá sig og svo framvegis. Ekkert mála að búa til síðu sem er svipuð og þessi sem þú bjóst til Alma. Það er vel hægt að búa til myndasvæði og linka það við þessa síðu, breyta henni eða setja inn linka og hafa þetta alvegs og við viljum. Við erum skonsurnar við erum ekki skonsess. Kommenta kerfið á blog.central er ömulegt og virkar oftar en ekki og allt stutfullt af auglýsingum og spami. Ég get vel stækkað þessa síðu gert meira pláss fyrir textann og svo framvegis. Birgitta eins og ég sagði í byrjun ef þú vilt aðra mynd af þér sendu mér hana þá. Minnsta mál að breyta. Spurning í sumar að við tökum einn saumarklubb og ég kenni ykkur að setja inn myndir, Hjördís jafnvel gæti gert það enda setur hún inn myndir á síðuna vikulega. Það er minnst mál að setja inn myndadasvæði. Hægt að fá þau ókeypis á mörgum stöðum, vandamálið með svoleiðis að þær ganga hægar og eru fullar af auglýsingum eða við jafnvel gætum bara fjárfestum í einu fínu myndasvæði, kostar okkur kannski 200 kalla á mann ári. Eða farið yfir á 123.is þar eru myndasvæði... bloggsvæði og hægt að búa til allskonar síður og jafnvel læsa síðunni. Þá gætum við rætt um allskonar hluti sem við kannski myndum ekki vilja að aðrir myndu lesa. Ég segi höldum áfram hér, og leggjum til að breyta síðunni eða flytjum okkur á 123.is ef við viljum læsa síðunni og hafa þetta bara útaf fyrir okkur. Enda var þetta í upphafi bara fyrir okkur til að halda sambandi á meðan fólk er fast heima með börn eða statt annarstaðar en á yndislegu eyjunni okkar. Viðhalda vinskapnum, setja saman saumaklúbbi og hittinga. Ræða um þau málefni sem brenna okkur á vörum. Ég veit að oft þegar mér er brennur eitthvað á hjarta þá virðist ég vera að skammast en það er ekki ætlunin. Ég bara hef sterka skoðun á þessu og HATA blog.central.is.. LOVE Jesúbarnið