Þá eru bara prófin búin og sumarið komið....jesss
Já ég talaði við Siggu í síðustu viku og við ræddum margt og mikið og spjölluðum saman um hvað við gætum nú gert til að hafa sumarið skemmtilegt!
Okkur fannst alveg kjörið að hittast 17 júní og hafa þá skonsu-barnadaginn og skonsu-makakvöldið sem þú stakkst uppá Tóta því Sigga kemur einmitt heim 16 júní og langar að hitta okkur allar og okkur auðvitað hana líka Hvernig standa annars íbúðamálin hjá þér? Er þetta að verða klárt eða? Við gætum þá kannski kíkt til þín í nýju íbúðina um kvöldið eða bara í Rauðagerðið ef það verður orðið klárt eða bara e-ð annað? Líst ykkur ekki vel á að hittast 17 júní??? Eigum við ekki bara að slá því föstu??? JÚJÚ!!!
David kemur síðan mánudaginn 3 júlí og hann og Sigga fara saman aftur út mánudaginn 10 júlí svo hann verður bara hér eina helgi! Okkur fannst því henta vel, þar sem okkur langar með hann útá land og halda líka partí, að við myndum fara útá land eftir vinnu hjá fólki fimmtudaginn 6 júlí (allir sem geta að redda sér fríi á föstudeginum!!!) og tjalda eða fara í bústað og síðan nota föstudaginn í að gera e-ð skemmtilegt eins og fara á snjósleða, í river rafting eða e-ð annað skemmtilegt. Síðan myndum við koma heim á föstudagskvöldinu og hvíla okkur. Á laugardeginum verður Eiki svo 25 ára (og svo eru síðustu HM-leikirnir í fótbolta einnig þá helgi....strákarnir mega víst ekki missa af því sko) og við Eiki myndum þá halda partí á Laugarásveginum og sína David hvernig maður skemmtir sér í Reykjavíkinni!
Hvernig líst ykur á.....mér finnst þetta alveg perfektó.....hlítur að vera hægt að redda sér fríi á föstudeginum ef það er svona góður fyrirvari
En var ekki annars búið að ákveða saumaklúbb á þriðjudaginn næsta (23 maí) hjá þér Hjödda? Við getum þá líka rætt þetta betur þar!
Drög að sumardagskrá:
Þri. 23 maí SAUMAKLÚBBUR HJÁ HJÖDDU
?? júní HITTA AUÐI (þegar hún kemur, já hvenær kemurðu kona?)
Lau. 17 júní TÓTU-PARTÍ (dagur-börn og kvöld-makar, Sigga líka komin)
Fim-Fös. 6-7 júlí ÚT Á LAND (David með, fá frí á föstudeginum)
Lau. 8 júlí PARTÍ Á LAUGARÁRVEGINUM (David með)
Ooooo......... þetta er svo gaman, við verðum bara að vera duglegar svo að hittast og halda skonsukvöld, grillpartí o.fl. í sumar, þetta gengur ekki lengur, ég sá ykkur síðast í MARS!!!
Endilega kommentiði elskur........ fá alvöru undirtektir hérna
Knús Sara :)