Ok ég verð að segja að það hlýtur að vera eitthvað skrýtið í stjörnunum. Á laugardaginn þá bakaði ég vöflur, á sunnudaginn fann ég prjónadótið mitt og prjónaði heilmikið og svo á sunnudagskvöldið þá ákvað ég að þrífa svefnherbergið (sem er svo sem ekki saga til næsta bæjar) og endaði á að breyta öllu þar inni sem er fáránlegt því að ég þoli ekki breytingar...
Hvað er málið ? Eru þið búin að upplifa eitthvað svipað?
Ein alveg ringluð.
og fyrir þá sem vita ekki þá baka ég aldrei, prjóna bara þegar ég er ólétt og breyti aldrei í íbúðinni minni.
ég er ekki ólétt.