Jæja þá er komin sunnudagur. Í mínu lífi er alltaf sunnudagur eða föstudagur... Kristján situr á móti mér og er að háma í sig Hlöllabát afar girnó en ég ákvað að fyrst að ég át hamborgara í kvöldmat að þá væri gott að fá sér ekki hlölla í kvöldkaffi. Hann var að koma heim áðan úr helgarferð upp á Öræfi eða eitthvað álíka með áhugaljósmyndaklúbbnum sínum svo að hann átti nú skilið gott að borða. Ég er alltaf að spegúlera í öllu, vá ég er ekkert að grínast með að það er ekkert lítið. Spá og spekúlera í hverju sem ég sé og heyri. Ég er búin að vera að spá hvort ég á að taka mannfræðina í háskólanum eða sálfræði veit ekki alveg, en það liggur heldur ekkert á ég á tvö ár eftir í stúdent. Iss það er ekkert. : P
Svo er það náttúrulega Búddað og sálarrannsóknirnar þetta er endalaus listi yfir pælingar. Nú er það ekki lengur Hjödda graða heldur Hjödda gáfaða.... Or not. Sumar af þessum pælingum er ekki hægt að koma í orð. En ég er ennþá pottþétt á að bjarga heiminum og fara að vinna hjá Barnaverndarstofu. Það er bara töff (báðar þýðingar gilda). En allavega ef ég virðist annars hugar þá er ég annars hugar að reyna að leysa gátu heimsins. Og getið hver hún er????
bæ