Appelsínuslagur. Í smábænum Ivrea á Ítalíu koma árlega saman þúsundir manna og fagna upphafi föstu. Þetta gera þeir m.a. með því að skipta bæjarbúum og gestum þeirra í nokkur lið sem síðan vígbúast með u.þ.b. 360 tonnum af ofþroskuðum appelsínum. Svo keppast menn við að henda þessum ávöxtum hver í annan í þrjá daga eða svo. “En af hverju í ósköpunum?” kynni nú einhver að spyrja. Jú, appelsínuorustan er til minningar um harðvítuga baráttu fátækra bænda á svæðinu gegn harðstjórninni sem þarna ríkti á miðöldum. Hvarfli það að einhverjum að hér sé um saklausan “boltaleik” að ræða skal það leiðrétt hér með. Tugir manna slasast í þessum appelsínuslag á ári hverju og algengustu meiðslin eru nefbrot, beinbrot og augnskaðar. Marblettir teljast ekki með því í lok hátíðarinnar er vandfundinn bæjarbúi sem ekki er blár og marinn frá toppi til táar. Það er hinsvegar rétt að geta þess að gamalt fólk og ferðamenn sem einungis vilja fylgjast með þessum ósköpum en ekki taka beinan þátt geta keypt sér rauða hatta sem gefa þá til kynna að viðkomandi sé “stikk-frí” … svona að mestu leyti.