Eftirtektirnar voru gríðalegar þegar ég spurði ykkur hvað væri að frétta hérna um daginn. Ég skil vel að maður nenni ekki að blogga alltaf og hefur stundum ekkert að segja eins og ég nákvæmlega núna þá er nú aðalmálið að kommenta smá eða bara segja stutt frá hvað var að gerast í Nágrönnum eða eitthvað. Ég t.d hef ekki séð nágranna lengi og væri vel þegið smá update frá ykkur heimavinnandi mömmum sem gerið ekkert allan daginn nema hanga með krílinu, skiptandi á kúkablejum og talandi barnamál. Nei gvuð ég tala eins og algjör remba. Allaveganna konan sem djammar aldrei er að fara eftir rétt rúmlega hálftíma heim að pakka fyrir djamm í Keflavík. Fyrsta Kveðjupartýið mitt vúhúu enda styttist í ferðina mín til ítalíu. Aðeins 25 dagar. Ég er nú reyndar orðin frekar stressuð en allt er þetta að smella saman. Ég er að fara að selja bílinn, tölvan farinn og sjónvarpið og rúmið bara eftir. Kannski gömul tugga en góð tugga. Jæja ætla að drífa mig heima, finna til bjórinn og skella draslinu mínu í tösku. Ég set svo inn myndir strax á sunnudaginn. Endilega kíkið líka á síðuna mína ég er búin að skanna inn allar myndirnar mína og setja þær á myndasvæðið mitt. Galtalæk, Laugarnesskóla og Laugalækjarskólamyndir. Ásamt Ítalíumyndum síðan ég fór 2002 og margt margt fleira. bið að heilsa og hlakka til að sjá ykkur um jólin. Já eitt að lokum við Sara, sem elskum að skipuleggja erum búnar að setja saman nokkra skonsu daga
22 des, fara saman í kringluna eða smáralind að versla og koma okkur í jólaskap.
23 des, fara saman að borða á Ara í Ögri og síðan rölta laugaveginn og síðan einn bjór á Grand Rokk
28 des spurning með að hittast á Kaffihúsi milli jóla og nýárs en við sjáum hvernig það fer.
31 des, gamlár stelpuhittingur á laugalæknum. Við allaveganna vonum það besta og sjáum til hvernig það fer. Við allaveganna hittumst flestar.
2 janúar 2006 Skonsu saumaklúbbur. Kveðja Auði sína og Siggu sem fer síðan aftur til Danaveldis. Eldum kannski saman og gerum eitthvað sjúkt. ENGINN börn allaveganna reyna að hafa sem fæst. Við Sara erum ennþá að jafna okkur eftir síðasta hitting hjá Hjöddu.
Hahah allaveganna í annað skiptið, verið blessaðar og verið hressaðar þangað til næst.
Kær kveðja Jesúbarnið Auður Elísabet