Þegar ég sá hvað Alma hafi skrifað þá fékk ég IDOL hroll og hélt að þetta myndi enda ílla. En þegar ég sá hvað þetta var krúttlegt og gaman að sjá hvað öðrum finnst þá ákvað ég að svíkja ykkur ekki og grafa, grafa djúpt í hjartað mitt og finna þessi yndislegu orð. Ég mun bara skrifa þetta einu sinni og síðan verður þetta ekki nefnt aftur. Hvorki í ræðum né til opinbera birtingar. Eina undirtekningin er þegar ég er dauð og viljið minnast þess að ég VAR tilfinningarvera. OK skilið, búið ykkur undir þetta.
Tóta: Besta vinkona mín, alveg ótrúlega góðhjörtuð og blíð kona, já ég sagði kona. Síðustu mánuði hefur Tóta orðið að þessari ótrúlega umhyggjusömu og ábyrgðafullu konu. Auðvita hjálpa það til að vera orðin mamma en það er meira en það. Tóta er velgefinn og ef hún leggur sig allra fram veit enginn hvar hún mun enda(þarmur). Hún á alltaf stórann stað í hjarta mínu enda hef ég upplifað alls með henni, sorg, gleði, og næstum því dauða.(Akureyr2004) og þess vegna elska ég hana.
Sigga: Göngugarpurinn, grændrykkjuteþambarinn og frú heilsusamleg Sigga Huld. Sigga lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Sigga fer sínar leiðir og það er ekkert fær hana til að stoppa. Ein af mínum bestu trúnaðarvinkonum og hægt er að ræða við hana um allt. Hún er smart, lekkert og agalega elegant kona/stelpa. (Sigga þekkir orðin) Rosalega vel gefinn og áhugasöm um allt og alla og ég elska hana.
Sara: Tölur, reikninga og formúlu. hún ert undursamlega fyndin með reikningana sína og ætti að hugsa sér að vera uppistandari ef lyfjafræðin klikkar. Ég er ennþá að hlægja að reikingar reikningunum hennar =) Hún er almennileg, vel gefin og skemmtileg. Alltaf til í góðar umræður hvort sem það er um daginn, veginn eða djúpar áhyggjur og þess vegna elska ég hana.
Birgitta: Vó bara því hún veit að ég er að skrifa þetta núna verð að gera eitthvað sjúkt væmið um hana. Birgitta litla rassgatið mitt, gera núna, spyrja seinna, þetta reddast litla rassgatið mitt. Birgitta er voðalega ákveðinn mennaskja og ef hún fær flugu í hausinn þá er stundum erfitt að tala hana til. Kannski því hún er meistarinn að tala fólk til. Hún getur fengið alla til að gera allt, NEMA mig. Hún veit það líka og að hún getur ekki fengið mig stundum til að gera hlutina eins og hún vill, það fer geðveikt í taugarnar á henni. Hún er ungur andi og á erfitt að ákveða sig með karlpeninginn. En eitt er víst að hún er traust vinkona, ef ég segi að hún sé skemmtileg þá mun hún tala um það endanlaus, þannig að ég ýja frekar bara af því. Með því að segja að það sé gaman að hanga með henni, hvort það sé í chilli, CHILLI eða í brjáluðu fjöri. Hún er litla yndið mitt sem mér finnst ég alltaf þurfa að passa uppá og þess vegna elska ég hana.
Hjördís: Furðulega vinkona mín, henni myndi ég treysta fyrir öllum mínum dimmustu leyndamálum og vita það að hún mundi aldrei dæma mig. Ótrúlega lífsgröð, nei meina lífsglöð og sterk persóna. Hún lyftir áhyggjum þínum, vinnur úr þeim og skila þeim á settlegan hátt til baka með leiðarvísir. Hún hefur kennt mér að treysta og þótt hún hafi stundum skrítnar skoðanir þá virði ég þær því hún hefur alltaf skýringu á afhverju hún gerir hlutina svona en ekki hinsegin. Þetta er það fyrsta sem mér dettur í hug ef ég væri spurð af hverju ég elskaði Hjördísi.
Brynja: Litla hjálpalausa vinkona mín eða ég hélt. Brynja er það svo þvert á móti. Hún yfirstígu allar hindranir sem henni verða á vegi. Er sú fljótasta sem ég veit um að aðlaga sig, hvort það sé húsnæðismál, atvinnu eða barneignir. Það tók hana ekki langann tíma að verða mamma, 1 sólarhring eða svo. Hún er litskrúðug manneskja sem kemur manni alltaf á óvart og er þægilegt að hafa hana í kringum sig og þess vegna elska ég hana.
Alma: Alma býr í sínum eigin litla heimi. Þegar hún syngur þá gerir hún það eins og það sé enginn að hlusta. Þegar hún tekur sér eitthvað fyrir hendur, þá klárar hún það og skilar frá sér vel unnu verki. Hún er ofurmamma og elskar strákana sína meira en allt annað í heiminum og lætur alla vita af því. Hún er góð og sönn vinkona og þess vegna elska ég hana.
Anna: Anna rokkari, Anna panna, AnaBanana..... Anna er léttleikinn uppmálaður. Alltaf svona til í ruglið en er samt á jörðinni allan tímann. Hún er fjölskyldu mamma og hlakka ég til að fara með henni og Einari í fjölskylduferðir í framtíðinni. Hún er traustsins verður vinur og skemmtileg og þess vegna elska ég hana.
að lokum vill ég segja að þið eruð allar góðar vinkonur mínar, fallegar og eins og Brynja sagði það best. Hressar og skemmtilegar og þess vegna elska ég ykkur.