Ég að klára mína seinustu næturvakt hjá símanum, allaveganna áður en ég fer út. Aðeins 41 dagur þangað til að ég leggíhann..... Ég er nú aðeins farinn að fá í magann, enda flýgur tíminn.Ég tók mér bessaleyfi og bauð Helgu Sif að vera með í Skonsunum. Helga Sif hefur búið á Ísafirði síðustu ár en alltaf haldið smá sambandi við okkur. Hún á eitt barn og hefur verið að vinna sem lögga á Ísafirði. Núna hefur hún og kærastinn hennar Siggi ákveðið að flytja í bæinn. Vóhhh mér finnst eins og ég sé að kynna nýjan nemanda og ég er kennarinn. Allaveganna Birgitta hvar ertu? Tóta er mýsla ennþá mesta krútt í heimi. Brynja hvað á hann að heita? Hjördís hvað er að frétta að handan? Anna hvað er uppi? Sara hvernig gengur að læra? Sigga ertu búin að heyra meir í Davíð? Alma er uppþvottvélin komin í lag?
Þetta er yndislegt