Stelpur ég verð að segja ykkur að littla krúttið þeirra Tótu og Steina er fullkomin. Svo hryllilega mikil dúlla að manni langar til að eiga hana, ekki það að það sé eitthvað farið að kveika neisti á barneignir og er langt fjarri því ennþá, en maður getur ekki ímyndað sér hvernig þetta sé að eiga barn. Mér finnst ég nú eiga smá í henni, og skrítið hvað manni er fljótt að þykja vænt um einhvern sem maður hefur aldrei séð áður. Finnst núna eins og hún hafi alltaf verið til enda er þetta bara falleg framlengin af þeim Tótu og Steina. En hér með vill ég óska ykkur aftur innilega til hamingju með þennan áfanga í lífinu. Þetta er stórt skref og er ég hamingjusöm að fá að upplifa það með ykkur. Heyr heyr síðan eiga allir að skála og hrópa húrra. Húrra Húrra Húrra......... Húrra.