Hvað er klukkan? Hún er 20:31
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Hjördís Erna
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Hjördís, Hjödda, mamma, Dídí, og svo slatti í viðbót sem ég man ekki í augnablikinu.
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Á síðustu afmælisköku voru sennilega 10 sem sagt langt síðan.
5. Hár? Stutt, dökkt og allt út í loftið.
6. Göt? tvö í eyrum sem ég er nýbúin að opna aftur.
7. Fæðingarstaður? Reykjavík
8. Hvar býrðu? Ásvallagötu 29.
9. Uppáhaldsmatur? Kjúklingasalat.
10. Einhvern tímann elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Já, þegar Kristján hagaði sér eins og fífl, þá fer ég að grenja yfir að vera svona mikið fífl að elska svona mikið fífl.
11. Gulrót eða beikonbitar? Gulrót.
12. Uppáhalds vikudagur? Föstudagur
13. Uppáhalds veitingastaður? Hereford og Ítalía.
14. Uppáhalds blóm? Öll nema páskaliljur :þ (ógeðsleg lykt)
15. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Pool og billjard.
16. Uppáhalds drykkur? Mangó te.
17. Disney eða Warner brothers? Hef ekki skoðun.
18. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? Burger Prince.
19. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Parket.
20. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Begga í Búdda.
21. Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Ég vil reyndar aldrei botna kreditkortið en þá myndi ég velja úti markað bara eitthver staðar.
22. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Horfi á sjónvarpið eða fer í tölvuleik.
23. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Hefurðu prófað þetta fyrir húðina á þér?????
24. Hvenær ferðu að sofa? Ca. 11.
25. Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Ummm Brynja.
26. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Vil ekki nefna nein nöfn...
27. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Csi.
28. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Kristjáni á Ítaíu.
29. Ford eða Chevy? Oj amerískir bílar.
30. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? Núna er klukkan 20:44 svo ég var 13 mínútur.