Jæja þá er að grilla .... nei djók en þetta er í alvöru.
Auður er mesta skass sem maður lendir í og stundum veit maður ekki hvort hún er að fara að knúsa mann eða hálsbrjóta. Hún er frábærlega hugmyndarík, stórkostleg listakona Og maður veit það ef henni finnst maður ekki fyndinn. Hennar skoðanir skipta mig öllu og hún hefur heilindi sem enginn hefur.
Sara er fiðrildi sem flögrar um með ótrúlega stórar og flottar hugmyndir í hausnum. Hún hefur tvo persónuleika þann ljóshærða og þennan dökka undir hehe. Hún lifir í öðru tímabelti en nær samt alltaf að skila af sér því sem hún ætlar. Það er fólk eins og Sara sem olli því að mannkynið dó ekki út strax eftir að það kom fram.
Tóta er hin ókrýnda fegurðar drottning, alltaf með ljósmyndalúkkið tilbúið og veit ekkert betra en þegar fólk dáist að henni. Innra með henni býr skemmtileg og metnaðargjörn manneskja og það elska hana allir nákvæmlega eins og hún er. Hún gerir heim allra í kringum sig litríkari.
Smáskammta Sigga (bara smá) er örugglega hjartahreinasta manneskja sem til er. Hún er alltaf til í að hlusta og alltaf til í að það sé hlustað á sig sama hvort hún viti hvað hún er að tala um eða ekki ahahahaha. Hún er falleg eins og engill en getur bitið FAST frá sér. Hún er, var og verður alltaf Sigga mín.
Brynja er manneskja sem maður vill ekki hitta mjög fulla, maður endar krambúleraður þó svo að hún hafi bara ætlað að knúsa mann. Hún er rosalega heppin en jafnframt ein sú óheppnasta sem ég veit um. Hún situr prúð og hljóð og heldur að maður taki ekki eftir því að hún er ekki svona mikil dama heldur bara svona steikt og utan við sig ahahahahaha. Hún er sannur vinur.
Birgitta ó elsku Birgitta þú ert snillingur. Þú er algerlega fædd á röngum stað á röngum tíma en hvað sem þú tekur þér fyrir hendur reddast alltaf allt og þú skemmtir þér konunglega með hið ókunna og það er örugglega ekkert skemmtilegra en að ferðast með þér vegna þess að maður veit aldrei í hvaða ævintýrum maður lendir. Þú ert ferðalangur sem átt þvílíkt bjarta framtíð fyrir þér og ekkert smá spennandi. Ég hlakka til að hitta þig það er svo langt síðan síðast.
Anna Dóra er fyndnasta manneskja í heimi og hún á fyndnasta kærasta í heimi. Hvert sem hún fer fylgir henni hamingja og gleði. Anna Dóra er alltaf hrein og bein. Hún hefur ótrúlegt ímyndunarafl (eins og að ætla að fara í verslunarferð með mömmu sinni og eiga enga peninga fyrir því ahahahaha), og ég virði allt sem hún segir ekki endilega af því að ég er sammála heldur af því að hún talar alltaf frá hjartanu.
Alma er þessi manneskja sem gefst aldrei upp. Þegar manni fannst að lífið væri að yfirbuga hana þá fann hún sér sína eigin leið til að halda áfram. Alma er mikið sterkari en mann órar fyrir og hún er manneskja sem myndi berjast út í rauðann dauðann fyrir þá sem henni þykir vænt um. Alma er manneskja sem myndi bjarga heiminum ef hún hefði nóg og góða ástæðu til þess.