Vá hvað er gaman að allir séu að skrifa á síðuna, þvílík breyting. Áður kíkti ég svona 2 í viku á síðuna en núna 2 á dag og það er alltaf komið eitthvað nýtt. Alger snilld. Ekkert smá stolt af okkur ;) Ég er núna heima og Lára er á leikskólanum ég sver það ég er bara að bíða þangað til klukkan er orðin 11:40 þá get ég lagt af stað að sækja hana. Ohh ég er svo mikill aumingi. Maður fattar líka þegar þetta gerist að nú er ekki við snúið hún er að fara AÐ HEIMAN. Nei smá djók ein í panikki. ahahaha
P.s. Tóta hvernig ertu eitthvað að gerast?? Er að springa úr forvitni....