miðvikudagur, október 08, 2008
Þrír litlir snáðar fæddir í skonsubarnahópinn okkar
Elsku Sigga, Sara og Birgitta, til hamingju með drengina ykkar.
Vonandi gengur allt rosa vel og ég vil fá myndir takk :D
|Hjördís|Skonsurnar|12:01 f.h.||
þriðjudagur, september 09, 2008
Hver á þessa bumbu?
|Hjördís|Skonsurnar|10:21 e.h.||
miðvikudagur, ágúst 06, 2008
Heimasíður með krílum
Hæ skvísur, ég var að spá þið sem eruð óléttar, eru þið með heimasíðu fyrir litla krílið?
|Hjördís|Skonsurnar|4:02 e.h.||
fimmtudagur, maí 22, 2008
Loksins komið sumar
Sælar skonsur
Takk fyrir síðast, mjög skemmtilegt að hitta ykkur og góðar fréttir í hópnum :-)
Gerum ráðstafanir í sumar með hitting. Sigga kemur allavega 17 júní og mig minnir að Auður komu í byrjun júlí.
Segjum það
|Hjördís|Skonsurnar|3:14 e.h.||
miðvikudagur, desember 26, 2007
Hittingur 27, 28 eða 29 des
Hæ Skonsur, eigum við að hittast eitthvern af þessum dögum og hafa kósýkvöld!
|Hjördís|Skonsurnar|6:16 e.h.||
laugardagur, ágúst 25, 2007
Halló elsku vinkonur mínar !!
Ég legg til að við endurvekjum þessa dásamlegu bloggsíðu sem hefur verið heldur betur afskipt þetta árið. Við erum allar búnar að vera svo uppteknar að tími er aldeilis kominn að við setjum á blað hvað hefur á daga okkar drifið.
Svo að ég segi aðeins frá mér þá var ég á síðustu önn heldur betur upptekin í skólanum og kláraði með fínar einkunnir og þar hæst 10 í eðlis- og efnafræði... alger töffari. Svo ég er alltaf að kyrja og bæta lífið mitt að innan sem utan og það gengur bara alveg ótrúlega vel :-D.
Í sumar tók ég einn áfanga í sumarskóla, ætlaði að taka tvo en komst bara yfir einn :-/ , svona er þetta stundum þegar börnin eru í simarfríi að maður kemst bara alls ekki yfir það sem maður ætlaði sér. En sumarið var rosalega gott, við vorum rosalega mikið úti í sólinni á meðan hún entist og svo fórum við í frábært ferðalag yfir verslunarmannahelgina.
Í síðustu viku byrjaði svo skólinn og allt er að renna í rétta rútínu, það er aldeilis gott því þetta er síðasta önnin mín í fyrir stúdentspróf.
|Hjördís|Skonsurnar|8:02 e.h.||
mánudagur, júlí 02, 2007
Afmælisbarnið Hjördís
|Hjördís|Skonsurnar|10:36 e.h.||